![]() |
|
|
|
|
| Ég heiti Hekla Sól, pabbi heitir Pálmar og mamma heitir Linda Karen. Við búum í Bergshamra, rétt við borgarmörk Stokkhólms. Pabbi og mamma kölluðu mig stundum "ungfrú Stokkhólmur" eða "Stokkhólmsprinsessan" áður en ég fékk nafnið mitt af því þeim finst ég vera fallegasta barn hér á stór Stokkhólms svæðinu og jafnvel í allri Svíþjóð!!! | |
|
Um mig:
Hekla Sól fæddist þann 17. desember 2006 á Karolinska sjúkrahúsinu í Huddinge. Hún var á hraðferð, fæddist 12 dögum fyrir settan dag og ruddi sér leið út hratt og örugglega, lét ekkert í veginum hindra komu sína. Alveg eins og eldgos!!! Hún líkist aðallega sjálfri sér, er með undurfalleg dimmblá augu sem fara vel við dökkt hárið og ljósbrúnan húðlitinn. Hún er einstaklega vær og góð en lætur þó heyra vel í sér ef hana skortir mat...það er það helsta sem hún á sameiginlegt með foreldrunum. Hún veit að það hjálpar ekkert að gráta mikið ef hún er svöng eða skortir athygli, það er nóg að "kalla" þá fær hún það sem hún vill.
Hún er sólin í lífi foreldra sinna ;)
|
|
|
|
|
Bogamaðurinn
22. nóvember-21. desember
Lítill fjörkálfur hefur litið dagsins ljós. Bogmannsbarnið er að öllu jöfnu glaðlegt og jákvætt og þægilegt í návist. Það þarf mikla hreyfingu og líklegt er að það fari snemma að ganga og skoða heiminn því bogmaðurinn er merki ferðalaga og strax í bernsku birtist þörfin fyrir ævintýraferðir af ýmsu tagi. Litlu bogmannskrílin þurfa að hafa gott pláss til að hreyfa sig en ef þau fá ekki útrás fyrir orku sína verða þau eirðarlaus og uppstökk. Bogmenn hafa yfirleitt yndi af íþróttum og hið dæmigerða bogmannsbarn er iðulega á kafi í alls konar íþróttaiðkunum. Listin að ala upp bogmann er fólgin í því að finna jafnvægi á milli frelsisþarfar annars vegar og ábyrgðarkennar og aga hins vegar. Foreldrar ættu að veita honum aðhald og venja hann á að ljúka því sem hann er að fást við áður en hann byrjar á nýju verki. Hann á það til að vera mjög fljótfær og nokkuð kærulaus og því þarf að hjálpa honum að þroska með sér dómgreind og skynsemi. Bogmannsbarnið verður mikið á ferðinni og um leið og það fer að komast sjálft ferða sinna leggur það í ferðalag um nágrennið og síðan lengra þannig að það getur verið erfitt að hafa stöðugt augun á þessu barni. Góða ferð. Meira um barn í bogamannsmerki Barn fætt í bogmanni er trúðurinn í bekknum og er ávallt glatt og mikið fjör í kringum það. Passaðu að hafa ekki glas fullt af vökva í kringum það, því bogamaðurinn á eftir að hella því niður. Þetta barn þarf mikið pláss í kringum sig og getur ekki ímyndað sér heiminn án frelsis. Bogamaðurinn elskar frelsið og ferðalög eru í uppáhaldi. Þú mátt búast við að þetta barn sé fyrst til að skrá sig í allar ævintýraferðir og ekki reyna að svipta því frelsinu. Orkan og ákafinn gera bogamanninn að góðum íþróttamanni. Barn í bogamannsmerkinu er stórhuga og opið fyrir öllu mögulegu og ómögulegu! Bogamaðurinn á mikið af vinum og finnst það yfirleitt gera lífið áhugavert. Það lítur jákvætt á heiminn og fólk og þetta er sennilega sá einstaklingur sem berst fyrir því að allir séu jafnir. Mikilvægt er fyrir bogamanninn að finna fyrir réttlæti og þetta barn vill heyra sannleikann í öllum málum. Barn í bogamannsmerkinu kemur sér oft í klandur vegna þess að það segir eitthvað óhugsað og stundum særir bogamaðurinn þig óafvitandi. Hann meinar ekkert slæmt með þessu! Getur stundum verið erfitt að vera foreldri bogamanns, því hann getur kjaftað óvart frá öllum helstu fjölskylduleyndarmálum. Þrátt fyrir þetta fyrirgefur þú þeim auðveldlega, því bogamaðurinn er svo glaður og gaman að vera í kringum hann. Barn í bogamannsmerkinu er svo ánægt með lífið að það getur ekki beðið eftir að vakna í fyrramálið og byrja nýjan dag.
Guttarnir þrír, Almar, Unnar og Steinar Guðríður og Anna Lóa Íris Embla og Logi Freyr Steinunn Marsilía Anna Hrefna Úlfur Stefán Steinar Logi og Sigurður Bjarki Kristín Inga og Elín Lind Tinna Dögg Dögun Emelía Dís Hrefna Lind og Sara Lind Karen Vala og Guðjón Dagur Grísirnir þrír á Bláskógunum Natan Blær Júlía Jökulrós og Emilía Snæbjörg Ronja Ísabel Tvíburarnir Oddný Edda og Benedikt Árni Sylvía Rós og Katrín Sóley Ester Jónas og Valgeir Salvör Dalla, Siggerður Egla og Kári Berglind Stefánsdóttir Lilja Marín Noah
|
|
| Þú ert gestur nr. 12308 |